Ég er..............

hver veit????

30.03.2008 21:03:06 / krissa

Long time none seen

jæja, harpa mín, þá skal ég skella inn einu bloggi, bara fyrir þig:) heh nei nei kannski alveg svo;)
annars er nú kannski ekki neitt margt að frétta af mér, þorrablótin eru náttlega búin og það var bara allt í key, hef samt ekki verið að gera neitt mikið síðan þá, bara vinna og skólanum.
Skólinn gengur eins og í sögu:) gæti held ég ekki gengið betur en það gerir:) það er bara rétt um mánuður eftir af skólanum og þá taka prófin við, en ég þarf sem betur fer ekki að fara í mörg próf, bara tvö í lolinu og sjú, held að ég eigi eftir að rúlla þessu upp:D heh enda er ég snillingur;)
ég er núna bara hjá diddunni minni og hennar gríslingum ömurlegt veður, þannig að ég ákvað bara að taka rútuna í vinnuna og spara pening:D heh ég er svo sniðug:D heh
úff hvað ég hef eiginlega ekkert að segja, er bara að vinna eins og mófó þessa dagana, tók að mér eina auka helgi þannig að ég er að vinna 10 daga samfleitt núna, fer í frí næsta föstudag og fer þá suður:D það á eftir að vera ótrúlega gaman held ég bara:D heh
en jamm, ég nenni ekki að skrifa neitt meira
allir að kommenta:D heh
tjá:D

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 16:37:39 / krissa

Víí

Jæja, þá er eitt þorrablót búið og næsta er eftir nákvæmlega 4 DAGA:D vá hvað mér finnst gaman að fara á þorrablót, hehe;)

anyways, þá var blótið hjá mér seinustu helgi og tókst það svona heavy vel hjá okkur, ég fékk að heyra daginn eftir að ég hefði verið fullkomin:D já geri aðrir betur:D heh Blótið heppnaðist í næstum alla staði vel, en það var eitthvað vandamál með hljóðkerfið í húsinu þannig að nokkur atriði tókust ekki sem skildi, þannig að maður varð geðveikt pirraður á því, alla vega sumir;) heh það var troðið af fólki og slógum við met fjölda, held ég barasta, alla vega var einhver að tala um það á tímabili, sem er náttlega bara gott og sýnir það að þetta er aðeins að lifna við þarna í sveitinni:D heh
myndavélin mín kom með í þessa ferð og einhvern veginn var svo mikið að gera hjá mér að ég steingleymdi að nota hana, þannig að ég á ekki neinar myndir af  blótinu:( en það vonandi tóku einhverjir myndir sem ég get fengið að sjá:D heh

skólinn er að byrja hjá mér á ný og er ég ekkert smá lukkuleg með það:D var að gera eitt verkefni í gær og er ég barasta heilluð af því sem ég er læra:D þannig að það er bara gott mál:D heh

en jamm, ég ætlaði bara að henda inn örlítilli færslu hérna, ég verð nú að segja að ég er nú ekki voðalega ánægð með undirtektir hérna, koma fullt af fólki inn og enginn sem vill commenta hjá mér:( ég fer bara halda að það sé eitthvað að mér:S nei nei segi svona:D

anyways, ég nenni ekki að skrifa neitt meira,
kem með gott blogg þegar blótin eru búin og ef tími finnst sökum anna við vinnu og skóla:D

já, svo ég gleymi því ekki, þá eignuðust Anna Gréta og Danni yndislega stúlku 25. janúar:) innilega til lukku með litlu dúlluna:D

adios:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 20:33:34 / krissa

Gleðilegt ár allir saman:D

Jæja, þá er komið nýtt ár og ég held að það sé kominn tíma til að blogga eitt stykki blogg:D

já, dáltið langt síðan ég bloggaði seinast, allavega hef ekki bloggað síðan í október.

en það helsta sem drifið hefur á daga mína undanfarna mánuði er nú kannski ekki neitt mikið, í byrjun nóvember fóru fundarhöldin fyrir þorrablótið að fara af stað, það var allt saman gert klár, þessir stóru pakkar eins og maturinn, húsið og hljómsveitin svo var bara jólafrí í þorrablótsundirbúningi þannig að desember gat runnið upp.

ég var nú frekar snemma í því að kaupa jólapakka og var ég búin að því upp úr miðjum desember, langaði sko engan veginn að eiga það eftir þar sem ég var að vinna tvær helgar fyrir jól, jólin komu og fóru, reyndar sá ég nú ekkert voðalega mikið af þeim því að ég var að vinna bæði jóladag og annan í jólum:S þannig að ég fékk náttlega mega mikinn pening og varð náttlega bara sæl með það, en samt dáltið leiðinlegt að vera að vinna svona jólin, kíkti síðan aðeins í gullbrekku um kvöldið á annan í jólum og hitti helguna mína aðeins sem var fyrir norðan um jólin. amma var hjá okkur á aðfangadagskvöld og var það virkilega þægileg stund, samt soltið skrítið að afi var ekki með okkur, en ég er alveg viss um það að hann var með okkur í anda og hafði bara gaman af því að fylgjast með krökkunum að opna alla pakkana:D hehe
ég var síðan í fríi bæði á gamlárskvöld og nýársdag þannig að ég skrapp aðeins í bæinn á gamlárskvöld, átti það kvöld góða stund með elfu heima hjá henni:) það var nú bara þokkalega þægilegt:D hehe

Það voru náttlega nokkrir hápunktar sem stóðu upp á árinu sem var að líða:
ég flutti aftur í sveitina til mömmu og pabba, ég útskrifaðist með glæsibrag úr skólanum og var ekkert smá stolt af sjálfri mér, eftir þvílíka brasið við þessa útskrift, fékk að vita það á fimmtudeginum fyrir útskrift, sem var á laugardeginum, að ég hefði náð öllum mínum prófum þannig að það var ægilega mikið hamingja hjá mér og öllum mínum nánustu:D
svo kom stóri dagurinn og það var ekkert smá gaman hjá mér:D allt mitt fólk sem mér þykir vænt um kom og eyddi deginum með mér, ég var ekkert smá fín, var í íslenska þjóðbúningnum sem að minn elskulegi langafi minn gaf mér á sínum tíma og ég er sko alveg handviss um að amma Mæja, langafi og langamma hafa verið með mér á þessu mikilvæga    degi:D

                                     Click for Full Size View

hérna er svo ein af mér á þessum yndislega degi:D


ég fór til reykjavíkur og keppti á landsmótinu og það var mjög sérkennilegt:D hehe það var reyndar bara dálítið gaman:D
í ágúst fórum ég og sara til egilsstaða og áttum þar yndislega helgi hjá ástu og kidda, vorum þegar ormsteitið var að byrja og það var ekkert smá gaman að sjá þetta, allir bæjarbúar tóku þátt:)
ég hætti á hjalteyri eftir að það var ákveðið að loka þannig að ég sótti um vinnu á sjúkrahúsinu og fékk vinnu á kristnesi, líkar ótrúlega vel þá vinnu og hefur hún gert það að verkum að ég er búin að ákveða hvað ég ætla að læra í framtíðinni:D
en það var einnig sorglegur atburður sem setti sitt mark á lífið mitt, minn elskulegi afi lést snögglega veikindi:( það var stórt högg skorið í hjarta mitt þegar það gerðist, ég er ótrúlega þakklát fyrir allar þær stundir sem ég átti með afa mínum, og þá sérstaklega að ég gat fengið að eiga útskriftardaginn með honum:) það er mér ómetanlegt:) en ég veit að afi kallinn er með mér og mun alltaf vera með mér:) elska þig elsku afi minn:)

en já, það er komið nýtt ár og nýtt upphaf, ég ákvað að fara í fjarnám, er að fara í 9 einingar í vma, bara svona til að undirbúa mig fyrir frekara nám:) vil ekki alveg segja hvað ég er að ara læra, það kemur sko í ljós seinna:)

en já, ég held að þetta sé orðið helv... gott blogg hjá mér í þetta skiptið,
bíllinn minn bilaður, þannig að ég er bara hjá hörpu minni þar sem að kallinn hennar er úti á sjó, erum bara að horfa á næturvaktina:) heavy kósý:)
svo eru þorrablótin alveg að fara að detta á fullt;) var að frétta að þorrablótið í bárðardal ætti að vera kvöldið áður en þorrablótið er hjá mér, þannig að það er ofboðslegur spenningur um að fara austur, en það kemur allt saman í ljós þegar nær dregur:)

en ég held að þetta sé bara gott hjá mér í bili:) hehe

hvernig væri svo að allir myndu commenta sem að kíkja á síðuna mína:)

adios:)

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 21:06:04 / krissa

Long time no seen...

Jæja, þar sem að ég hef eiginlega ekki neitt að gera ákvað ég að henda inn einu stykki bloggi.

Eins og ég sagði í seinasta bloggi var vinnustað mínum lokað 1 október og ekkert að gera nema að vinna uppsagnarfrestinn, ef að það var einhver vinna, þannig að ég fór og sótti um vinnu og ég fékk hana, svona eiginlega næstum:) ég sem sagt sótti um vinnu í ræstingum á sjúkrahúsinu en ég fékk í staðinn að fara á kristnes. Það er ótrúlega fínt, ég er að vinna á móti annarri og við skiptum því á milli okkar að vera að skúra og í bítibúrinu. Þetta er ekki líkamlega erfið vinna, ég er semsagt á öldrunardeildinni og það er svo gaman að fá að vinna með gamla fólkinu:) gaman að sjá hvað allir eru glaðir með lífið:) ég er að vinna vaktavinnu þannig að ég er að vinna aðra hverja helgi, nema að ég tók seinstu helgi auka, þannig að ég er aftur um helgina og svo frí næstu helgi. Enda nok gott, því að árshátíðin er þá og ekki má ég sleppa henni;)

Annars er voðalega fátt að frétta, ég varð 21 3. okt, en ákvað að halda ekkert neitt mikið upp á það, bauð bara nokkrum í kökur um kvöldið, ótrúlega góður dagur:) svo átti mamma afmæli nokkrum dögum seinna og svo á Heiðdís sys afmæli eftir nokkra daga, þannig að það er fullt af afmælum í mánuðinum:)

vá, ég er svo tóm eitthvað í kollinum að það er ekki eðlilegt, enda orðin ponku þreytt og er farin að langa óstjórnlega mikið til að skríða upp í rúm og fara að kúra, en það gengur ekki, þarf víst að fara aðeins út á eftir og ganga frá ýmsum lausum endum.

úff, ég veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna, þannig að ég læt þetta duga.

læt heyra í mér fljótlega aftur.

...........later;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 18:59:49 / krissa

Smá fréttir

ákvað að drita inn hérna nokkrum orðum og bara leyfa fólki að vita að ég er ennþá á lífi og hef það svosum sæmilegt, gæti nú samt verið betra.

göngur og réttir eru búnar þannig að allar kindurnar okkar eru komnar heim í tún og ekkert smá þægilegt að vita af þeim hérna heima í stað þess að vera einhvers staðar uppi í fjalli í öllum þessum snjó og ógeði.
var í fríi á mánudaginn og fór í réttir til ömmu gömlu, seinustu réttirnar sem hún á kindur í réttinni þannig að ég eiginlega gat ekki sleppt því að fara í réttir til hennar:) alltaf gott að fara til ömmu

ég er náttlega byrjuð að vinna aftur en það stóð nú ekki lengi yfir, það er búið að vera rosalega lítið að gera og svo kom vendi punkturinn í gær þegar það var tilkynnt að það ætti að hætta starfsemi þar sem ég er að vinna, þannig að ég þar núna að leita mér að annarri vinnu:( en það er hægt að fá fullt af vinnu og vonandi get ég fengið mér vinnu sem fyrst:)

þannig að þessa dagana er ég að mála heima hjá mömmu og pabba og það er svosum ágætt, ætla að fara í næstu viku og leyta mér að vinnu.

en jamm, ég nenni ekki að skrifa meira, þarf að fara að brasa dáltið.

allir að kvitta:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 18:50:48 / krissa

Ágúst

Úff, þá er ágúst eiginlega að verða hreinlega búinn, þetta er ekkert smá fljótt að líða, en jamm, ég er ekki búin að blogga í háa herrans tíð þannig að það er kannski barasta kominn tími á það að maður driti niður nokkur vel valin orð um það sem á daga mína hefur drifið síðustu vikur.

versló náttlega gekk í garð eins og alltaf og ég djammaði ekki neitt, var að vinna alla helgina, þannig að ég eiginlega bara græddi á þessari helgi heldur að tapa stórlega á henni, reyndar var ég nú eiginlega bara fegin því að vera að vinna heldur en að rotna úr leiðindum þessa helgi því að það hefur held ég sjaldan verið eins fáir í bænum eins og núna:( eins gott að þetta verði ekki svona næsta ári því þá ætla ég ekki að vera hérna....

ég er búin að vera í sumarfríi frá því 30 júlí og er búin að gera svo lítið eitthvað að það hálfa væri nóg. heyskapurinn var búinn fyrir ágústbyrjun þannig að ekki var nú hægt að gera neitt í þeim málum. ég fór til ömmu minnar og var hjá henni í nokkra daga og afrekaði það að ná öllu lakkinu af kommóðunni minni sem er hjá gömlu konunni:) þannig að nú tekur bara við að pussa gripinn og svo að lakka hana og ganga frá:) get hreinlega ekki beðið þangað til ég er búin að gera hana upp, þetta verður sko massa flott hjá mér og afa mínum því ekki má náttlega gleyma því að hann er allan tímann að hjálpa mér:)

þórdís mín er alfarin suður fyrir veturinn, hún fór á föstudaginn seinasta og vá hvað ég á eftir að sakna hennar mikið:S

ég og sara fórum á egilsstaði fimmtudaginn 16 ágúst sl. kiddi vinur okkar átti afmæli og ákvaðum við að fara og þar að auki var ormsteiti að byrja og mér langaði svo að upplifa hverfaleikana.
á föstudeginum fórum ég og sara fyrir hádegi og fórum á reyðarfjörð, eskifjörð, norðfjörð og fáskrúðsfjörð og það var barasta ágætisupplifun, ég hef náttlega ekki farið þangað í nokkur ár, þannig að það var tímabært að kíkja þangað aftur og skoða þessa staði því þeir hafa allir stækkað dáltið síðan álverið kom þarna fyrir austan. um kvöldið fórum ég og sara með ástu á hverfaleikana og þetta var ótrúlega flott allt saman, af því að við fórum ekki í hverfagrillið þá löbbuðum við beint upp á vilhjálmsvöll og horfðum á það þegar öll hverfin komu inn á völlinn í einni röð á eftir orminum langa, hann var reyndar geðveikt flottur:) ég byrjaði að skella í mér bjór og hafði bara mjög gaman af þessu, sara fór reyndar heim um 9 leytið sökum kulda þannig að ég var bara þarna með ástu og síma genginu þarna á egilsstöðum, það var reyndar bara alveg gaman:) eftir að dagskráin var búin á vellinum þá röltum við niður í bæ í stóra tjaldið þar sem það var fjölskyldudansleikur, við kíktum aðeins inn í tjaldið og dönsuðum ponku en annars eyddum við kvöldinu á bekk fyrir utan pebes barinn að spjalla saman, síðan var eitthvað um að vera upp á valaskjálf þannig að ég labbaði þangað með einhverju fólki á meðan ásta fór heim og þá varð ég sko hreinlega fyrir vonbrigðum:( ég borgaði 800 kall inn og það voru svona 10 manneskjur þarna inni, ég hélt að egilsstaðarbúar kynnu nú að skemmta sér en það hefur eitthvað brugðist alla vega þetta kvöld:S þannig að ég labbaði bara heim og fór að sofa:) það var reyndar svosum allt í lagi því að kollurinn var nú ekki alveg á hæga snúningi, reyndar var hann á allt of miklu snúningi og átti ég í mestu erfileikum með að hægja á honum:S en það hafðist á endanum og fékk ég svo sannarlega að kynnast því að ég hefði fengið mér aðeins í tánna daginn eftir þegar ég vaknaði, með þennan líka litla hausverk:( en hann lagaðist þegar líða tók á daginn og var ég laus við hann seinni part dags:) er svo dugleg að taka ekki nein verkjalyf:D hehe
við tókum því svo bara rólega á laugardeginum, sátum bara inni í stofu og skiptumst á að horfa á sjónvarpið og kettina, því það sem þessum köttum sem þau eiga dettur í hug er náttlega hrein snilld:D hehe

á sunnudeginum horfðum við svo á liverpool vs. chelsea og það var sko kominn dágóður hiti í mannskapinn þarna:) hehe bara gaman að horfa á svona og sjá fólkið svo sem er að horfa á svona leiki;) hehe ég og sara fórum svo heim um seinnipartinn og var ég komin heim rétt um 9 leytið:) það var svo ljúft að sofa í mínu rúmi eftir að vera búin að sofa á gólfi í tvær nætur;)

en ásta og kiddi, takk kærlega fyrir mig, þetta var geðveikt gaman og við verðum að endurtaka þetta einhvern tíman aftur:)

þessa vikuna er ég bara eitthvað að dúlla mér, er að fara í bústað með mömmu og krökkunum á föstudaginn og svo koma pabbi og tommi á sunnudeginum, held ég, annars veit ég ekki. það verður fínt að vera eitthvað í faðmi fjölskyldunnar svona einhversstaðar annarsstaðar en heima, þó svo að heima sé best:D hehe en svo þegar heim er komið úr bústað tekur vinnan við á ný:(

vá, ég held að það eigi eftir að verða geðveikt erfitt að fara byrja aftur að vinna, sérstaklega þar sem ég þarf að vakna kl hálf sjö á morgnana:S úff þetta á eftir að taka á:S en það hefst fyrir rest:D hehe

en jamm, ég held að þetta sé nú eiginlega orðið gott hjá mér

allir að lesa og allir að kvitta fyrir svo að ég fái meiri hvatningu í það að blogga meira:)

anyways..... later:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 17:21:53 / krissa

Alveg að koma sumarfrí:D

Vá hvað tíminn er fljótur að líða, það er eins og júlí sé eiginlega nýbyrjaður og þá er bara mánuðurinn búinn8|

ég er að fara í sumarfrí í allan ágúst mánuð, og vá hvað það verður notað tímann til einhvers góðs, annað heldur en að hanga heima og bora í nefið;) hehe

það var svo rólegt í vinnunni alla seinustu viku að það var eiginlega ekki eðlilegt, vorum bara eitthvað að þrífa kör og eitthvað dót, svo fór ég upp á verksmiðjuna og vá hvað það var geðveikt útsýni og ég er svo stolt af sjálfri mér að hafa getað þetta, er sjúklega lofthrædd og get engan veginn staðið uppi á grind til að skera niður en gat farið upp á þakið á verksmiðjunni:D fékk svo hringinu á föstudeginum um það að ég ætti að mæta til tannsa eftir vinnu og var nú ekkert að spa í því neitt, hélt að þetta væri bara svona venjulegt eftirlit, en annað kom nú á daginn, það var hreinlega tekinn eitt stykki endajaxl úr mér og vá hvað mér finnur mikið til:( hitti aðeins elfu áður en ég fór heim aftur á föstudaginn og hún gat ekki gert neitt annað en hlegið að mér, ég var svo dofin og gat engan veginn talað.
um kvöldið kíkti ég samt aðeins til elfu og gunna og sátum þar nokkur og spjölluðum um heima og geima.

á laugardeginum var nú fátt brallað, fór til ömmu, sópaði hjá mér og eitthvað að dúlla mér í herberginu mínu og stofunni minni:) fór svo með söru í mat til vaivu og sigga og fengum við geðveikt góða pizzu:) mmm takk fyrir mig:) vorum hjá þeim alveg til 11 og fórum svo að rúnta og fórum heim til signýjar sem var að vinna með söru í bakariinu og þar var einhvers konar bakaríshittingur og sara labbaði þar eitthvað inn en ég harðneitaði að fara þangað inn þannig að ég sat bara úti í bíl, svo vorum við bara eitthvað að rúnta en ákvaðum svo að skella okkur til dalvíkur;) jújú mikið rétt, við skruppum til dalvíkur, samt eiginlega bara til að hitta omar aðeins:) hann er allaf jafn hress og það var sko bullað heilmikið:) hehe bara gaman:) svo er ég bara eiginlega ekki búin að gera neitt í dag nema bara að slaka á og leika mér í tölvunni:D hehe

haha, seinstu helgi ákvað ég að bregða landi undir fót og hélt til egilsstaða, svona aðeins að komast í burt frá akureyri og ég virkilega hélt að ég væri að gera góða hluti með því að fara, en annað kom á daginn þegar á leiðarenda var komið og gerði fólk ekkert annað en að hlæja að óförum mínum:( en ég er nú eiginlega sjálf farin að hlæja að þessum óförum mínum og hef ákveðið að líta bara björtum augum á þetta allt saman:) hehe
gisti hjá ástu og kidda um nóttina og það var vikrilega nice að hitta þau:)

svo bara versló næstu helgi og vá hvað mig hlakkar til:) er soltið að spá í að fara í sjallan á föstudeginum, langar alveg svakalega mikið til þess að fara. er reyndar að vinna á laugardeginum frá kl 6:30-14 og frá 16 og fram eftir kvöldi, þannig að það er svona eiginlega ennþá í vinnslu hvað ég eigi að gera.... en kannski ég skelli bara, allvega í smá stund:D hehe

svo er ferðinni heitið á egilsstaði 16 ágúst á ormsteiti og vá hvað ég get ekki beðið eftir því:D ég og sara erum að fara til ástu og kidda og fáum að tjalda í garðinum þeirra:) það verður bara stuð þá:D enda get ég hreinlega ekki beðið eftir því að fara austur;) það á að vera eitthvað mega grill og djamm á laugardeginum og svo á hann kiddi minn afmæli 16 ágúst þannig að það er fínt að slá tvær flugur í einu höggi:D ekki satt??

hehe en jæja, kannski ég fari að láta þetta gott heita, held að þetta sé orðin dáltil lesning:) heh

hvernig væri svo að fólk myndi skrifa í gestó eða commenta, leiðinlegt að sjá svona marga koma á síðuna og enginn að skilja eftir loppufar:(

anyways......... see u 8er alig8er:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 17:14:07 / krissa

Kominn tími eða??

jæja, ætli það megi ekki segja að það sé kominn tími á nýtt blogg, hefði reyndar haldið það;) hehe

en það er annars að frétta að það er geðveikt gott veður þessa dagana og ætla ég svo sannarlega að vona að það verði jafn gott veður þegar ég fer í frí eins og er núna:D

ég er alltaf að vinna og vinna meira, en þetta styttist nú, bara ein vika og þrír dagar eftir og þá er komið mánaðar stopp:) ég ákvað svo fyrir löngu síðan að fara til egilsstaða og vera þar eitthvað og ætla ég að standa við það, kannski maður kíki eitthvað meira, það er aldrei að vita:D hehe

laugardagskvöldið fyrir viku síðan var reunion hjá mínum árgangi í þeló og það var barasta mjög gaman:) hittumst öll á greifanum  og fengum okkur að borða og vá hvað við hlógum mikið, þetta var eins og við værum alltaf að hittast náðum það vel saman:D eftir greifann þá var farið til Sesars, það mátti sko ekki gleyma honum og skáluðum við honum tl heiðurs, hann hefur ábggilega verið ánægður með okkur:) þaðan var farið heim til Atla og fengu þeir sem vildu sér öl og það var sko allt látið flakka þar:D vorum þar þangað til klukkan farin að ganga þrjú, þannig að það var skellt sér niður í bæ til að ná einhverju djammi, þræddum alla staðinu en það endaði þannig að við fórum í sjallan og það var barasta ágætis stemmari þar:D

þessi vika hefur verið einstaklega góð:D allt á fullu í heyskap og vinnu þannig að ég er rosalega fegin að vera komin í helgarfrí, veit ekkert hvað ég á að gera af mér, ég kannski finn mér eitthvað til að gera:) get alltaf fundið mér eitthvað að gera:D hehe

en jabb, var búin að hugsa um eitthvað til að skrifa en ég man engan veginn hvað það var þannig að það þarf bara að bíða betri tíma:)

anyways, allir að kvitta fyrir sig:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 15:30:17 / krissa

??

Bara að láta vita af mér, ég er sem sagt ennþá á lífi, bara ekki haft neinn tíma né nennu til að blogga.

 Ég þarf að fjárfesta í nýrri tölvu, skjárinn á minni er alveg dáinn og það eiginlega borgar sig að kaupa sér nýja heldur en að fara að henda pening í að láta gera við hana. þannig að ég er svona aðeins að líta í kringum mig í sambandi við þær.

ég er búin að vera í sumarfríi alla þessa viku og búin að hafa það bara gott, er að fara suður á morgun, ég og mamma, erum aðallega að fara á landsmótið en svo náttlega er ég líka að fara að leika mér;) veit ekki hvort að elfa ætli að koma með okkur, hún var eitthvað að hugsa um það, en ég veit ekki:(

en jamm, amma er í bústað þannig að ég sé um ættarsetrið á meðan;) svo gott að fara í sveitina þó svo að það sé skrítið, en ég finn það þegar ég fer þangað að afi er þarna og hann lítur eftir manni:) var meira að segja búin að sjá það að hann var aðeins byrjaður að fylla í sprungur og holur á kommóðunni minni sem er þarna:) þannig að hann er að hjálpa mér:)

en jybb, ætli ég verði ekki að drífa mig, þarf að skjótast á ak og græja aðeins meira áður en ég legg í hann suður á bóginn;)

eitt í viðbót..... hver ætli verði númer 18.000? ;)

allir að kvitta;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 13:24:32 / krissa

17. júní:)

jæja, þá er barasta kominn 17. júní í dag, vá hvað tíminn er eitthvað fljótur að líða:S

anyways, þessi mánuður er búinn að vera mjög skrítinn og á ég ennþá eftir að venjast aðstæðum en það vonandi kemur fljótlega.

ég er ekkert búin að djamma um helgina:S vá hvað ég er eitthvað skrítin, en reyndar langaði mig ekkert rosalega til þess að fara að djamma, það er ekkert gaman að fara edrú að djamma og svo stungu sumir bara af í burtu frá akureyri:(

á föstudaginn voru ég og sara eitthvað að rúnta og vá hvað það eru margir flottir bílar í bænum, ég varð hreinlega veik að sjá alla þessa flottu bíla hehe;) svo í gær var ég að vinna aðeins í hrauni á einhverri hátíð og það var barasta allt í key, nema að ég uppskar líka þennan litla sólbruna á handleggjunum, birngunni og andlitinu að ég er að deyja mér svíður og klæjar svo mikið í þetta:( síðan fór ég í bæinn í gærkveldi og var að rúnta aðeins með söru, svo með láru og svo fór ég til elfu og vorum við að rúnta alveg til 6 í morgun.

er svo bara núna eitthvað að láta mér leiðast, fer svo í bæinn að hitta diddu og amöndu mína og ætla að vera með þeim í dag, það verður sko bara stuð á okkur;)

en ég nenni ekki að skrifa neitt meira.

ALLIR AÐ KVITTA!!!

hugz&kisses


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 18:17:42 / krissa

Þú átt mitt hjarta...

Minn ástkæri afi lést í gær:cry:

Mikið er söknuðurinn sár, síðustu dagar eru nokkurn veginn í móðu en ég fékk þó að eiga nokkra stund með afa mínum.

Elsku afi minn, ég þakka þér fyrir öll árin sem við áttum saman, þau eru ómetanleg og mun ég alltaf minnast þeirra. Síðasta helgi var svo toppurinn, ég náði að útskrifast og fékk ég að eyða deginum með ykkur hjá mér og var það yndislegt:)
Þegar ég var lítil átti ég ófáar stundirnar með ykkur ömmu heima í sveitinni og ég þakka fyrir þær allar. Man eftir því að skríða uppí á milli ykkar ömmu á morgnana og hvað það var gaman að fá að greiða þér. Það var sko yfirleitt gert þegar amma fékk rúllur í hárið, þá var oftast teknar tvær til þrjár rúllur, greiða og vatn í glasi og var þá greitt afa eins og ömmu.

Allar stundirnar sem við höfum átt á laugardagsmorgnum þegar ég kom með blöðin eru ómetanlegar:) Ég á þér margt að þakka elsku afi minn og mun ætíð muna eftir þér:)

Ég kveð þig með trega og söknuði í hjarta mínum.
Takk fyrir allar stundirnar saman.

Elsku amma, megi góður guð gefa þér allan þann styrk sem þú þarft.

Ykkar Kristlaug María


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 12:44:51 / krissa

Stúdína:D

Jahá. Nú þarf ég að útskýra margt og mikið.

í færslunni sem ég skrifaði seinast og er búin að eyða stóð að ég myndi ekki útskrifast fyrr en um jólin, en það aldeilis breyttist á örfáum dögum.
ég sem sagt féll í íslensku 403 og tók upptökupróf, síðan fékk ég fréttir að kennarinn væri búin að fá nokkur próf og væri búin að gefa einkunn fyrir þau, þannig að ég athugaði mína einkunn og sá að ég hefði fallið á þessu upptökuprófi:( þannig að ég sagði frá því að ég hefði fallið og að ekkert yrði af útskriftinni:( en það átti eftir að breytast, ég fékk símhringingu frá kennslustjóranum mínum á miðvikudagsmorguninn og var sagt að ég gæti útskrifast af þriggja ára braut tekið síðan þennan eina áfanga í sumar eða haust og útskrifast um jólin sem stúdent. þannig að ég ákvað að útskrifast af þriggja ára braut af því að það var kominn svo mikill spenningur í alla. Þannig að ég og mamma fórum í bæinn á miðvikudaginn og tókum allt sem þurfti til þess að halda smá veislu og ég hringdi í allt fólkið um kvöldið.
á fimmtudaginn gerðist nokkuð óvænt, eitthvað sem ég átti alls ekki von á. Ég var eitthvað að athuga tölvupóstinn minn hjá vma og var þar mail frá íslensku kennaranum mínum og í því stóð að ég hefði náð þessu upptökuprófi og væri þar með orðin stúdent:D þannig að ég hringdi upp í skóla og lét vita af þessu og var bókstaflega í skýjunum:D
þannig að í gær kl ellefu setti Kristlaug hvíta stúdentshúfu á kollinn sinn:D

dagurinn í gær var hreint út sagt æðislegur:D hélt smá veislu á kaffi lísu á hjalteyri og komu eiginlega allir sem ég bauð og var þetta mjög góður dagur, fékk margt og mikið til dæmis.

  • tvo borðlampa
  • gólf lampa
  • skálar og borðbúnað
  • úr og borðklukku
  • gjafabréf á glerártorg, valrós og hár og heilsu

bara svo að nokkuð sé nefnt.

kíkti aðeins í bæinn í gærkvöldi en var nú samt ekki lengi, kíkti aðeins heim til gunna í gær og keyrði síðan liðinu niður í bæ og fór bara heim, var orðin svo þreytt að það var bara þægilegt að geta lagst undir sæng og farið að sofa:D

en jamm, veit ekki hvað ég á að segja meira, helga mín er að koma norður í dag, ætla aðeins að hitta hana þegar hún kemur, hún verður ekki það lengi fyrir norðan. svo er kannski spurning um að kíkja eitthvað út í kvöld:D

en allir að kvitta:D

stúdínan kveður að sinni:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 12:11:52 / krissa

Prófin búin:)

jæja, þá eru prófin búin, get nú ekki sagt að það hafi verið mörg próf, var í prófi á fimmtudaginn og svo á föstudaginn, þannig að núna er bara að bíða eftir útskriftinni:D get hreinlega ekki beðið svona lengi:D hehe

á fimmtudaginn var ég svo góð að ég var uppí skóla alveg til klukkan 9, var að hjálpa ebbu að gera þrykkið sitt, þannig að ég var öll blá á puttunum þegar ég var búin:S ekki nógu gott, en það var bara skellt sér í heitt bað og skrúbbað litinn af;) hehe
á föstudagskvöldið ákvað ég að kíkja aðeins í bæinn, langaði að sjá dimmeteringarfólkið þegar það kæmi aftur í bæinn, en ég sá bara eiginlega engann, nema einn prest, nokkra kærleiksbirni og pöndur og svo einn grís. en það er samt alltaf gaman að sjá fólk í svona skrítnum búningum;) hehe ég og elfa voru bara eitthvað að rúnta saman, svo keyrði ég henni heim og ætlaði að fara heim um þrjú leytið en þá hringdi óla í mig og ég fór aðeins með henni:) geðveikur bíll sem hún var á:D sweet, mig langar í svona bíl sko:) nema hann á að vera sjálfskiptur:) hehe skutlaði síðan liðið heim og fór svo heim að sofa.
gerði nú dáltið mikið hérna heima með múttu og kíkti svo aðeins í bæinn að hitta huldu frænku, því að hún er að fara til noregs og kemur ekki aftur til landsins fyrr en í haust, þannig að maður varð að knúsa hana áður en hún færi. ég, elfa og nítró kíktum svo aðeins á rúntinn en ég var bara komin heim rétt um tólf leytið.

svo er þórdís mín að koma í dag:D get hreinlega ekki beðið eftir að hitta hana:D það á eftir að vera svo gaman hjá okkur í sumar:D hehe
en jamm, ég veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna.... skrifa næst þegar ég finn eitthvað sneðugt til að segja..

......................later, aligater;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 14:43:48 / krissa

Próf

Jæja, ætlaði bara að láta vita af mér smá, dáltið síðan ég bloggaði....:S en það er allt gott að frétta af mér, var í prófi í gær í íslensku 403 og er svo að fara í próf í dag í íslensku 503 kl 5 er bara í smá pásu frá lærdómnum;) heh

en jamm, best að halda áfram að læra....

heyri í ykkur seinna:)

tjá:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 21:47:09 / krissa

Löng færsla:S

Jæja, þá er gott að koma með eitt stykki blogg í tilefni af því að ég hef ekkert að gera og drulluleiðist:(

ég semsagt fór suður til þórdísar á fimmtudaginn í seinustu viku og það var megastuð hjá okkur:D ég og Eva frænka keyrðum suður á fummtudaginn eftir vinnu og skóla og vorum komnar í borgina um hálf ellefu leytið eftir frekar erfiða keyrlu með rigningu, roki og eiginlega öllum veðrum sem hægt er að keyra í. ég skutlaði með evu til helgu en okkur tókst ekki alveg að finna þetta, þannig að við stoppuðum bara í einni hliðargötunni niður í bæ og helga kom og við keyrðum á eftir henni heim til hennar.
eftir að vera búin að skoða litlu krúttlegu "íbúðina" hennar keyrði hún á undan mér heim til þórdísar og var ekkert smá gott að vera komin heim til hennar:D

það var nú ekki farið beint í háttinn, heldur henti ég töskunum inn, skipti um föt og kíktum við aðeins á players, en þar var eitthvað fátt um manninn og ég var orðin svo hrikalega þreytt þannig að við ákváðum að fara heim að sofa.
á föstudaginn á meðan þórdís var að vinna fór ég á álftanesið til önnu grétu vinkonu og var í hádegismat hjá henni, takk fyrir mig:D svo eftir hádegið kítkum við í ikea og ég keypti mér geðveikt flotta kommóðu og þrjá lampa, ég hreinlega varð veik þegar ég kom þarna inn, gæti eytt heilum degi þarna og verslað huges mikið;) en ég fer þegar ég er búin að koma með betur fyrir og sona:) eftir að vera búin að shoppast í ikea fór ég og náði í helgu niður á raddison hótel, skutluðumst í mjóddina fyrir afa gamla og fórum svo aftur niður á raddison, lentum í brjálaðslegri umferð á leiðinni upp í mjóddina, ég hef aldrei séð svona marga bíla á götunni í einu, lá við að hjartað mitt hefði bara horfið:S eftir að við komum niður á raddison aftur fór ég með helgu, evu og mömmu þeirra og pabba að skoða í tónlistabúðir, og vá hvað það kom mikil tilfinning um það að fara að læra aftur á píanó, sá fullt af bókum sem mig vikrilega langar mikið í :S

Á föstudagskvöldinu fórum ég og þórdís á hverfisbarinn í afmæli hjá einum sem var að vinna með þórdísi í ríkinu, ég náttlega, utanbæjarmanneskja, þekkti engann og hún ekki heldur þegar við komum þangað, þannig að við fengum okkur bara sæti og ég fékk meðr bjór og vorum bara að spjalla:) svo komu tveir sem eru að vinna með henni, en við nenntum þá ekki að vera neitt mikið lengur þannig að við fórum bara á rúntinn með vini hennar þórdísar;) geðveikt nice. við nenntum samt ekki að vera lengi úti þetta kvöldið og vorum komnar heim um hálf þrjú leytið, stór dagur daginn eftir, þannig að það var gott að fara bara heim og hvíla sig:)

daginn eftir vöknuðum við um tíu leytið, fengum okkur morgunmat og fórum svo að shoppast:D skoðuðum margt og mikið, en ég fékk mér samt ekki neitt mikið, keypti mér geðveika skó, ég er svo skotin í þeim að það liggur við að ég sofi með þau í rúminu hjá mér:) en ég geri það ekki;) kíktum í kolaportið og smáralind og fengum okkur pizzu á pizza hut, mega góð:) fórum svo heim um hálf fjögur leytið að byrja að gera okkur klárar, því það náttlega tók sinn tíma, svona eins og allt annað:D

um kvöldið fórum við svo til ásu ninnu fyrir árshátíðina og vorum þar aðeins að drekka og spjalla og ég svona aðeins að reyna að kynnast einhverjum. vorum voru komnar niður í gullhmra rétt um sjö leytið, eiginlega fyrstar á staðinn:S en síðan var opnað inn í salinn og vá hvað þetta var ógó töff:D geðveikt góður matur, nema forrétturinn, eitthvað sjávarrétta dótarí, síðan piparsteik í aðalréttinn og hún var geðveikislega góð, síðan var volg súkkulaði kaka með vanilluís í eftirrétt og þetta bókstaflega bráðnaði í munni. hvítvínið sem var með forréttinum varrosalega gott, ég nefnilega er ekkert mikið fyrir hvítvín og ef ég ætla að drekka það þá verð ég að setja aðeins sprite í það til að finna ekki eins mikið fyrir bragðinu eins og það er. En það var brjálaðslega gaman:D við hlógum eins og vitleysingar af eiginlega öllu og ekki neinu:D vorum smá á ballinu og svo fórum við niður í bæ og var ferðinni haldið á hressó, og vá hvað það var gaman:D ég var svo í essinu mínu að það hálfa væri nóg:D það var brjálaður stemmari á hressó og ég talaði við fullt af fólki sem ég þekki ekki baun, eitthvað sem ég geri aldrei hérna á djamminu:S en svona er þetta:D

vaknaði um hádegi daginn eftir og brunaði af stað norður yfir heiðar og var komin norður rétt fyrir sex, og þá var sko þreytan aðeins farin að segja til sín. Þetta var besta reykjavíkur ferð sem ég hef farið í og égsé alls ekki eftir því að hafa farið til þórdísar minnar:D hún fer alveg að koma til akureyrar og ég get hreinlega ekki beðið eftir því að hún komi hingað:D sakna hennar svo mikið að það hálfa væri nóg:(

annars er það að frétta að sara er hætt í bakaríinu og farin á vestri-reyni til halla og gunnu og ætlar að vera þangað til næstu helgi, þá kemur hún aftur heim og við flytjum út, jámm þið lásuð rétt, við erum að flytja út, því að við verðum eiginlega ekki neitt inn á ak í maí og ég er orðin svo leið á því að keyra alltaf á milli og ég nenni ekki að fá mér einhverja aðra vinnu því að ég er að fá mega útborgað þarna:D þannig að ég ætla að flytja heim til mömmu og pabba aftur. það verður reyndar alveg fínt, þá spara ég pening og svona:D hehe en ég skal vera dúleg að koma inn á ak;)

hehe en jamm, veit ekkert hvað ég ætla að gera í kvöld, svandís sys verður 9 ára á morgun, tíminn er ekkert smá fljótur að líða, finnst svo stutt síðan hún var bara nýfædd:S svo er afmæli hjá indíönu annaðkvöld, gellan verður sko 2 ára 28 apríl, þannig að það er nóg að gera:)

en jamm, ég nenni ekki að skrifa meira, held að þetta sé orðið alveg nóg:)

allir að kvitta;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti